01.02.16 - 16:07
Ívan Guðjón Baldursson
Ayoze Perez hjá Newcastle til 2021 (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hinn 22 ára gamli Ayoze Perez kom til Newcastle sumarið 2014 og hefur gert 12 mörk í 63 leikjum síðan þá.
Tottenham og Manchester United eru meðal liða sem hafa sýnt áhuga á leikmanninum en nú er Newcastle búið að tryggja sér þjónustu framherjans næstu fimm árin.

Newcastle hefur eytt miklum pening í þessum félagsskiptaglugga þar sem félagið ætlar að gera allt mögulegt til að forða sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni.
Ayoze skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við Newcastle og segist hlakka til framtíðar sinnar hjá félaginu.
„Newcastle hefur gefið mér allt sem ég get óskað mér og ég er mjög ánægður með að skrifa undir samningsframlengingu,\" sagði Ayoze, sem var keyptur frá Tenerife og kostaði eina og hálfa milljón punda.
„Ég er mjög ánægður hérna og þetta er því gríðarlega mikilvægur dagur í mínu lífi.\"
Steve McClaren, knattspyrnustjóri Newcastle, var einnig mjög ánægður með undirskriftina.
„Ég er hæstánægður með undirskriftina. Hann er mjög góður leikmaður sem getur orðið meðal þeirra bestu í heimi. Við trúum því að hann eigi eftir að spila mjög stórt hlutverk hér í framtíðinni.\"

Heimild: Mirror