Fotbolti.net
01.02.16 - 19:37
Ívan Guðjón Baldursson

Colin Kazim-Richards til Celtic (Staðfest)

Colin Kazim-Richards til Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Colin Kazim-Richards er genginn til liðs við Celtic í Skotlandi.

Kazim-Richards er 29 ára gamall, fæddur og uppalinn á Englandi en hefur alla sína tíð leikið fyrir tyrkneska landsliðið og hefur gert 2 mörk í 37 leikjum þar.
Kazim-Richards hefur ekki átt gott tímabil með Feyenoord í hollensku deildinni, þar sem honum hefur aðeins tekist að skora eitt mark í ellefu deildarleikjum.

Fyrir tveimur vikum ógnaði Kazim-Richards fréttamanni og var í kjölfarið settur í tveggja vikna agabann hjá Feyenoord, sem rann út í dag.

Kazim-Richards, sem hefur leikið fyrir Bury, Brighton, Sheffield United og Blackburn í enska boltanum, er búinn að skrifa undir samning til 2018.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.