Fotbolti.net
01.02.16 - 09:54
Magnús Már Einarsson

Danskur framherji í Val (Staðfest)

Danskur framherji í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valur hefur samið við danska framherjann Nikolaj Hansen. Hann á að fylla skarð Patrick Pedersen sem gekk til liðs við norska félagið Viking í vetur.

Hinn 23 ára gamli Nikolaj kemur til Vals frá FC Vestsjælland en hann var með lausan samning. Samningur hans við Val gildir út árið 2016.
Nikolaj er 192 cm á hæð en hann spilaði með yngri liðum Benlose og Ringsted. Á árunum 2011-15 lék Hansen með Vestsjælland og Koge. Hann lék þá 93 leiki og skoraði 14 mörk. Nikolaj lék einstaklega vel með Vestsjælland í fyrra en þá skoraði hann 6 mörk í 8 leikjum.

„Ég er mjög spenntur fyrir að koma til Íslands og spila í bestu deildinni þar. Valur er einn af stærstu klúbbunum á Íslandi og með langa sögu og það heillar að koma í félagið,\" sagið Nikolaj en hann kemur til Íslands í þessum mánuði.

„Ég vil koma, æfa mikið, leggja mikið á mig fyrir liðið og liðsfélagana og vonandi skora mörk. Valur hefur verið með marga danska leikmenn sem er gott og ég þekki aðeins til Patrick Pedersen sem spilaði vel fyrir liðið.\"

„Verandi hávaxinn leikmaður er ég góður í að taka á móti knettinum, halda honum og dreifa til liðsfélaga. Ég tel mig góðan skalla mann og jafnframt góðan í markteig andstæðinganna. Ég hlakka til að koma til Íslands og byrja þetta ævintýri hér, vonandi gengur allt vel.\"
Nikolaj skrifar undir hjá Val.

Nikolaj skrifar undir hjá Val.

Canon

Mynd: Valur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.