Fotbolti.net
01.02.16 - 21:45
Ívan Guðjón Baldursson

De Laet til Middlesbrough út tímabilið (Staðfest)

De Laet til Middlesbrough út tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Ritchie De Laet er genginn til liðs við Middlesbrough á láni út tímabilið.

Boro er í toppbaráttu Championship deildarinnar og er ljóst að De Laet er öflugur liðsstyrkur fyrir liðið, enda kemur hann frá Leicester þar sem hann hefur leikið 111 deildarleiki á þremur og hálfu ári.
De Laet hefur meðal annars spilað fyrir Manchester United, Portsmouth og Norwich City í enska boltanum frá því að hann gekk fyrst til liðs við Stoke City árið 2007.

De Laet er 27 ára gamall og getur leyst allar stöður í varnarlínunni, en er yfirleitt notaður sem hægri bakvörður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.