Fotbolti.net
01.02.16 - 20:39
Ívan Guðjón Baldursson

Debuchy til Bordeaux (Staðfest)

Debuchy til Bordeaux (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski hægri bakvörðurinn Mathieu Debuchy, sem leikur fyrir Arsenal, er genginn til liðs við Bordeaux í frönsku deildinni þar sem hann mun leika út tímabilið.

Debuchy missti byrjunarliðssæti sitt í hægri bakvarðarstöðu Arsenal til Hector Bellerin og þarf að fá spilatíma til að reyna að komast í franska landsliðshópinn fyrir Evrópumótið í sumar.
Debuchy er 30 ára gamall og hefur aðeins komið við sögu í 12 deildarleikjum frá komu sinni til Arsenal fyrir einu og hálfu ári.

Debuchy var leikmaður Lille í Frakklandi í tíu ár áður en hann fór til Newcastle, en Arsenal keypti hann svo fyrir 12 milljón pund. Hann á 27 landsleiki að baki fyrir Frakkland
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.