Fotbolti.net
01.02.16 - 17:48
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Diego Perotti til Roma (Staðfest)

Diego Perotti til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski kantmaðurinn Diego Perotti er genginn til liðs við AS Roma, en hann hafnaði tilboði frá Watford fyrr í janúar.

Roma greiðir eina milljón evra til að hafa Perotti á láni þar til í júní 2017 og þarf svo að greiða níu milljónir í viðbót til að gera félagsskiptin endanleg.
„Þetta er risastórt skref fyrir ferilinn minn, ég er mjög ánægður með að vera kominn í jafn stórt félag og Roma er,\" sagði Perotti við Roma TV.

Perotti er 27 ára gamall og hefur gert góða hluti með Genoa í ítölsku A-deildinni, en á einnig 117 deildarleiki að baki fyrir Sevilla á Spáni og hefur leikið tvisvar sinnum fyrir argentínska landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.