Fotbolti.net
01.02.16 - 18:42
Ívan Guðjón Baldursson

Doucoure til Watford (Staðfest)

Doucoure til Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 23 ára gamli Abdoulaye Doucoure er genginn til liðs við Watford eftir níu ár hjá Rennes í Frakklandi. Hann er búinn að skrifa undir samning við enska félagið sem rennur út sumarið 2020.

Doucoure er miðjumaður og þótti gífurlega efnilegur á sínum tíma, þar sem hann var lykilmaður á miðju franska U17 ára landsliðsins.
Doucoure hefur síðan þá leikið 16 landsleiki fyrir yngri landslið Frakka og 75 deildarleiki fyrir Rennes.

Watford reyndi að kaupa Doucoure síðasta sumar en samkomulag náðist ekki en nú hefur félaginu loksins tekist að landa miðjumanninum.

Samkvæmt Daily Mail kostar Doucoure 8 milljón pund og verður lánaður strax til Granada á Spáni, en Granada er systurfélag Watford í eigu ítölsku Pozzo fjölskyldunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.