Fotbolti.net
01.02.16 - 07:30
Alexander Freyr Tamimi

Emmanuel Emenike í West Ham (Staðfest)

Emenike reyndi að skipta sjálfum sér af velli í Tyrklandi.

Emenike reyndi að skipta sjálfum sér af velli í Tyrklandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Emmanuel Emenike er genginn í raðir West Ham á láni út tímabilið frá Fenerbahce. Lundúnaliðið hefur möguleika á að kaupa framherjann í sumar.
Emenike er 28 ára gamall og hefur gert 9 mörk í 37 landsleikjum fyrir Nígeríu. Hann gerði garðinn fyrst frægan hjá Karabükspor í Tyrklandi og svo hjá Spartak Moskvu, áður en hann var fenginn aftur til Tyrklands, í þetta skiptið til Fenerbahce.

Endurkoma Emenike til Tyrklands gekk ekki að óskum og þegar hann missti byrjunarliðssæti sitt vildi hann yfirgefa félagið sem fyrst. Hann lenti m.a. í kynþáttafordómum af hálfu eigin stuðningsmanna og reyndi að skipta sjálfum sér af velli.

Emenike hefur verið á láni hjá Al Ain á tímabilinu til þessa og skoraði hann níu mörk í 15 leikjum fyrir félagið, sem spilar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.