Fotbolti.net
01.02.16 - 12:44
Magnús Már Einarsson

Federico Fazio til Sevilla á láni (Staðfest)

Aftur til Sevilla.

Aftur til Sevilla.

Canon

Mynd: Getty Images

Sevilla hefur fengið varnarmanninn Federico Fazio í sínar raðir á láni frá Tottenham.
Þessi 28 ára gamli Argentínumaður þekkir allt inn og út hjá Sevilla því hann spilaði með liðinu frá 2007 til 2014.

Tottenham keypti Fazio frá Sevilla á átta milljónir punda í ágúst árið 2014.

Hann hefur hins vegar ekki náð að festa sig í sessi í liði Tottenham.

Á þessu tímabili hefur Fazio ekki spilað eina mínútu í ensku úrvalsdeildinni en hann vonast nú til að fá spiltíma á Spáni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.