Fotbolti.net
01.02.16 - 22:31
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Fiorentina fær Benalouane frá Leicester (Staðfest)

Fiorentina fær Benalouane frá Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Yohan Benalouane mun spila fyrir Fiorentina út tímabilið, en ítalska félaginu sárvantar menn í vörnina.

Fiorentina greiðir 300 þúsund pund til að fá Benalouane á láni og getur keypt hann í sumar. Talið er að Fiorentina þurfi að greiða um 7 milljónir punda til að kaupa varnarmanninn.
Benalouane er 28 ára gamall miðvörður frá Frakklandi sem Claudio Ranieri fékk til Leicester síðasta sumar á 6 milljónir punda.

Benalouane hefur aðeins komið við sögu í fjórum deildarleikjum á tímabilinu en hann býr yfir þokkalegri reynslu úr ítalska boltanum, þar sem hann hefur leikið fyrir Cesena, Parma og Atalanta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.