01.02.16 - 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Jordan Rhodes til Middlesbrough (Staðfest)

Rhodes er markahæstur af öllum í enska boltanum síðan ágúst 2012, enda búinn að gera 85 mörk síðan.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Jordan Rhodes er genginn til liðs við Middlesbrough eftir að hafa leikið fyrir Blackburn Rovers í þrjú og hálft ár.
Hjá Blackburn gerði Rhodes 82 dmörk í 159 deildarleikjum, en þar áður gerði hann 87 mörk í 148 leikjum hjá Huddersfield.

Middlesbrough er í toppbaráttu Championship deildarinnar en hefur ekki verið að skora nægilega mikið af mörkum upp á síðkastið og er búið að tapa síðustu tveimur leikjum sínum 1-0.
Liðið er í öðru sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Hull City og fjórum stigum á undan Burnley, en Boro á leik til góða flest lið deildarinnar.
Rhodes er búinn að gera 11 mörk fyrir Blackburn á þessu tímabili, en Blackburn er í neðri hluta deildarinnar, 5 stigum frá fallsæti.
Daily Mail greinir frá því að Rhodes kostar 11 milljónir punda. 9 milljónir hafa þegar verið greiddar og hinar 2 verða greiddar ef Boro kemst í úrvalsdeildina. Þá er Julien De Sart einnig genginn til liðs við félagið frá Standard Liege.