01.02.16 - 22:05
Ívan Guðjón Baldursson
Leroy Fer til Swansea (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Swansea fær Leroy Fer á láni frá QPR út tímabilið og á hann að hjálpa liðinu í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.
Fer er 26 ára gamall og á QPR, sem leikur í Championship deildinni, erfitt með að ráða við launagreiðslur til leikmannsins.
Fer er 26 ára gamall og á QPR, sem leikur í Championship deildinni, erfitt með að ráða við launagreiðslur til leikmannsins.
Fer hefur áður spilað fyrir Norwich í ensku deildinni en gerði garðinn frægan með Feyenoord og FC Twente í hollenska boltanum og á hann ellefu landsleiki að baki fyrir hollenska landsliðið.
Fer hefur spilað 19 leiki fyrir QPR á tímabilinu og þótt standa sig mjög vel.
Fer hefur spilað 19 leiki fyrir QPR á tímabilinu og þótt standa sig mjög vel.
