01.02.16 - 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Marco van Ginkel til PSV (Staðfest)

Van Ginkel lék í 17 deildarleikjum hjá AC Milan á síðasta tímabili.

Mynd: getty

Marco van Ginkel mun spila fyrir PSV Eindhoven út tímabilið en hann hefur verið á láni hjá Stoke City fyrri helming tímabilsins.
Van Ginkel er 23 ára gamall miðjumaður og er samningsbundinn Chelsea. Frá komu sinni til félagsins hefur hann verið lánaður til Milan, Stoke og nú fer hann til PSV.

Van Ginkel er hollenskur og hefur leikið tvo leiki fyrir A-landsliðið og 23 leiki fyrir U21 liðið.
Van Ginkel var byrjunarliðsmaður hjá Stoke, en krafta hans er ekki þarfnast eftir komu franska miðjumannsins Giannelli Imbula á metfé.