01.02.16 - 18:33
Ívan Guðjón Baldursson
Modibo Diakite til Sampdoria (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sampdoria er að bæta við sig varnarmönnum enda hefur vörn liðsins verið skelfileg á tímabilinu og ekkert lið fengið fleiri mörk á sig í deildinni, fyrir utan nýliða Frosinone sem eru næstneðstir.
Franski miðvörðurinn Modibo Diakite er nýjasti leikmaðurinn til að ganga til liðs við Sampdoria, en hann kemur einmitt frá Frosinone.
Franski miðvörðurinn Modibo Diakite er nýjasti leikmaðurinn til að ganga til liðs við Sampdoria, en hann kemur einmitt frá Frosinone.
Diakite hefur áður spilað fyrir lið á borð við Lazio, Sunderland og Fiorentina en hann gekk til liðs við Frosinone síðasta sumar og spilaði ellefu deildarleiki fyrir félagið í haust.
Diakite er 28 ára gamall og mun berjast við Andrea Ranocchia og Niklas Moisander um byrjunarliðssæti í hjarta varnarinnar.
Diakite er 28 ára gamall og mun berjast við Andrea Ranocchia og Niklas Moisander um byrjunarliðssæti í hjarta varnarinnar.
