Fotbolti.net
01.02.16 - 19:59
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Napoli búið að klófesta Regini (Staðfest)

Regini í leik með Sampdoria gegn Napoli fyrr á tímabilinu.

Regini í leik með Sampdoria gegn Napoli fyrr á tímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Napoli er búið að staðfesta komu Vasco Regini til félagsins, en hann kemur á lánssamning út tímabilið með kaupákvæði.

Regini er 25 ára vinstri bakvörður sem hefur leikið 19 landsleiki fyrir yngri lið Ítalíu og á yfir 150 deildarleiki að baki á Ítalíu.
Regini kemur frá Sampdoria og hefur leikið 14 deildarleiki á tímabilinu.

„Napoli staðfestir komu Vasco Regini frá Sampdoria,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu Napoli.

„Varnarmaðurinn kemur til félagsins á lánssamning með kaupákvæði.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.