Fotbolti.net
01.02.16 - 20:52
Magnús Már Einarsson

Oumar Niasse til Everton (Staðfest)

Oumar Niasse til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Everton

Everton hefur keypt framherjann Oumar Niasse í sínar raðir frá Lokomotiv Moskvu.

Kaupverðið hljóðar upp á 13,5 milljónir punda sem gerir Oumar að þriðja dýrasta leikmanni í sögu Everton.
Niasse er 25 ára gamall en hann kemur frá Senegal.

Hann hóf meistaraflokksferil sinn í heimalandinu áður en hann fór til Brann í Noregi árið 2012.

Eftir stutt stopp þar þá spilaði Niasse eitt tímabil með Akhisarspor í Tyrklandi áður en hann fór til Lokomotiv árið 2014 þar sem hann hefur verið duglegur að skora síðan þá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.