Fotbolti.net
01.02.16 - 13:05
Magnús Már Einarsson

Pellegrini hættir með Manchester City í sumar (Staðfest)

Pellegrini hættir með Manchester City í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Manuel Pellegrini hefur staðfest að hann muni hætta sem stjóri Manchester City í sumar.

Pellegrini staðfesti þetta á fréttamannafundi nú rétt í þessu. Pep Guardiola mun taka við stjórastöðunni af Pellegrini.

„Ég lýk mínu starfi hér 30. júní. Það hafa verið miklar sögusagnir, ekkert sem hefur verið gert á bakvið mig en ég tel að það sé ekki gott að hafa svona sögusagnir og þess vegna ákvað ég að greina fjölmiðlum og leikmönnum frá þessu,\" sagði Pellegrini.
Hinn 62 ára gamli Pellegrini tók við Manchester City árið 2013 og gerði liðið að enskum meisturum á sínu fyrsta tímabili.

Pellegrini er reyndur þjálfari en hann stýrði áður Real Madrid, Villarreal, Malaga sem og liðum í Suður-Ameríku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.