Fotbolti.net
01.02.16 - 15:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Quagliarella til Sampdoria (Staðfest)

Það var fyrst tekið eftir Quagliarella hjá Sampdoria. Hann hefur einnig leikið 25 landsleiki og skorað í þeim 7 mörk.

Það var fyrst tekið eftir Quagliarella hjá Sampdoria. Hann hefur einnig leikið 25 landsleiki og skorað í þeim 7 mörk.

Canon

Mynd: Getty Images

Fabio Quagliarella er kominn aftur til Sampdoria og verður þar á láni út tímabilið.

Quagliarella er nýorðinn 33 ára gamall en Sampdoria er einmitt félagið sem hjálpaði honum að koma sér á framfæri fyrir tíu árum síðan.
Quagliarella var óþekktur í ítalska boltanum en gerði 13 mörk í 35 deildarleikjum með Sampdoria og var í kjölfarið seldur til Udinese.

Framherjinn gerði góða hluti hjá Udinese, var seldur til Napoli og svo til Juventus þar sem hann lék 83 leiki í deild áður en hann var fenginn yfir til nágrannanna í Torino.

Quagliarella kemur á lánssamning út tímabilið en í samningnum er sérstakt kaupákvæði sem gerir Samp kleift að kaupa leikmanninn í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.