01.02.16 - 18:26
Ívan Guðjón Baldursson
Rhoys Wiggins til Bournemouth í fjórða sinn (Staðfest)

Wiggins í leik með Charlton gegn Nathan Redmond og félögum í Norwich.

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Rhoys Wiggins er genginn til liðs við Bournemouth í fjórða skiptið á ferlinum.
Wiggins, sem er 28 ára, fór fyrst til Bournemouth á láni árið 2008 og svo aftur 2010.

Þegar seinna láninu lauk var Wiggins keyptur til Bournemouth, þar sem hann lék í aðeins eitt tímabil áður en hann var seldur til Charlton.
Vinstri bakvörðurinn fór til Sheffield Wednesday síðasta sumar en fékk lítinn spilatíma og er nú genginn í raðir Bournemouth fyrir 200 þúsund pund.
„Ég var hissa þegar ég frétti af áhuganum, en Eddie Howe er góður stjóri og veit hvað ég hef fram að færa,\" sagði Wiggins við BBC Radio Solent.
Wiggins á 17 landsleiki að baki með yngri landsliðum Wales, en hefur aldrei spilað fyrir A-landsliðið.