01.02.16 - 17:14
Ívan Guðjón Baldursson
Serdar Tasci til Bayern út tímabilið (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Serdar Tasci verður á láni hjá Bayern München út tímabilið. Tasci er 28 ára gamall miðvörður og á 14 landsleiki að baki fyrir Þýskaland og fór á HM með landsliðinu árið 2010.
Tasci var leikmaður Stuttgart í átta ár áður en hann fór til Spartak Moskvu, þar sem hann hefur verið síðustu þrjú ár.
Tasci var leikmaður Stuttgart í átta ár áður en hann fór til Spartak Moskvu, þar sem hann hefur verið síðustu þrjú ár.
Spartak hefur ákveðið að lána Tasci til Bayern út tímabilið, en Bayern vantaði miðvörð eftir að hafa misst Jerome Boateng í meiðsli.
„Við erm mjög ánægðir með að hafa tekist að krækja í svona öflugan leikmann með svo skömmum fyrirvara,\" sagði Matthias Sammer, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern.
„Við erm mjög ánægðir með að hafa tekist að krækja í svona öflugan leikmann með svo skömmum fyrirvara,\" sagði Matthias Sammer, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern.
