Fotbolti.net
01.02.16 - 13:39
Magnús Már Einarsson

Seydou Doumbia til Newcastle (Staðfest)

Mættur til Newcastle.

Mættur til Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur fengið framherjann Seydou Doumbia í sínar raðir á láni frá Roma út tímabilið. Newcastle á einnig forkaupsrétt á leikmanninum í sumar.

Doumbia kom til Roma fyrir ári síðan frá CSKA Moskvu en hann var lánaður aftur til Rússlands fyrri hlutann á þessu tímabili. Nú mun hann prófa að spila á Englandi.
„Ég er ánæður með að vera leikmaður Newcastle United,\" sagði Doumbia.

„Það hefur alltaf verið draumur minn að spila í ensku úrvalsdeildinni og nú er draumurinn orðinn að veruleika, svo ég er mjög ánægður.\"

Steve McClaren, stjóri Newcastle, hefur verið mjög duglegur í þessum glugga en auk Doumbia hefur hann fengið Jonjo Shelvey, Andros Townsend og Henri Saivet.

Newcastle greiðir hálfa milljón evra fyrir lánið og getur keypt hann fyrir 11 milljónir í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.