Fotbolti.net
01.02.16 - 17:34
Ívan Guðjón Baldursson

Sheringham hættur með Stevenage (Staðfest)

Sheringham hættur með Stevenage (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Teddy Sheringham hefur sagt upp hjá Stevenage FC sem leikur í ensku D-deildinni. Gengi Stevenage hefur verið herfilegt undanfarna mánuði og er liðið aðeins búið að fá 3 stig af síðustu 24 mögulegum í deild.

Stevenage endaði í sjötta sæti D-deildarinnar á síðasta tímabili, en undir stjórn Sheringham er liðið rétt fyrir ofan fallsvæðið.
„Ég hef átt þetta félag í 16 ár og hef aldrei séð neinn stjóra vera jafn óheppinn og Teddy hefur verið,\"

„Við höfum misst fleiri leikmenn á þessu tímabili heldur en samanlagt síðustu þrjú tímabil og auðvitað getur það komið fyrir að liðið tapi niður forystu á lokamínútunum, en það hefur gerst í fjórum af síðustu átta leikjum.

„Teddy kom inn og fékk minni pening til ráðstöfunar en hefur verið síðustu ár. Hann hefur gefið sig allan í verkefnið en því miður er þörf á breytingum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.