Fotbolti.net
01.02.16 - 21:11
Ívan Guðjón Baldursson

Steven Fletcher til Marseille út samninginn (Staðfest)

Steven Fletcher til Marseille út samninginn (Staðfest)
Canon

Mynd: Marseille

Steven Fletcher mun leika fyrir franska félagið Marseille út tímabilið og kemur hann á láni frá Sunderland.

Fletcher er 28 ára gamall og hefur gert 23 mörk í 86 deildarleikjum fyrir Sunderland auk þess að hafa gert 8 í 25 leikjum fyrir Skotland.
Fletcher hefur ekki fengið að spila mikið á tímabilinu en samningur hans við Sunderland rennur út í sumar og verður hann því frjáls ferða sinna eftir tímabilið.

Fletcher gæti spilað fyrir félagið strax á morgun er liðið mætir Montpellier, en Marseille er búið að eiga frekar slakt tímabil og er um miðja deild, fimm stigum frá Evrópudeild og átta stigum frá fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.