Fotbolti.net
01.02.16 - 22:41
Ívan Guðjón Baldursson

Stoke fær Imbula á metfé (Staðfest)

Imbula í leik með Porto gegn Chelsea í Meistaradeildinni.

Imbula í leik með Porto gegn Chelsea í Meistaradeildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Giannelli Imbula er genginn til liðs við Stoke City á metfé, en hann kostar félagið 18.3 milljónir punda og kemur frá Porto.

Imbula er franskur miðjumaður, sem er þó fæddur í Belgíu og á enn eftir að leika A-landsleik. Hann á 11 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Frakka.
Imbula gerði garðinn frægan hjá Marseille, þar sem hann var byrjunarliðsmaður í tvö ár áður en hann gekk til liðs við Porto á 15 milljónir punda síðasta sumar.

„Giannelli er leikmaður sem við höfum verið að fylgjast með í langan tíma og erum himinlifandi með að hafa fengið hann til félagsins,\" sagði Tony Scholes, framkvæmdastjóri Stoke.

Imbula er aðeins 23 ára gamall en hefur þó leikið hátt upp í 200 leiki á ferlinum fyrir Guingamp, Marseille og Porto.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.