01.02.16 - 16:38
Ívan Guðjón Baldursson
Swansea lánar Eder til Lille út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portúgalski sóknarmaðurinn Eder kom til Swansea síðasta sumar fyrir 5 milljónir punda en hefur ekki enn tekist að skora mark fyrir félagið.
Swansea hefur því ákveðið að lána Eder til Lille, sem er óvænt þremur stigum frá fallsæti í frönsku deildinni, út tímabilið.

Eder er búinn að koma við sögu í þrettán deildarleikjum fyrir Svanina, án þess að skora.
„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og það var tekið ótrúlega vel á móti mér,\" sagði Eder.
„Mér líkar vel við þjálfarann og starfsliðið og ég er virkilega hrifinn af æfingasvæðinu hér, sem er í mjög háum gæðaflokki.\"