Fotbolti.net
01.02.16 - 16:23
Ívan Guðjón Baldursson

Tan hafði betur gegn kerfinu - Zohore til Cardiff (Staðfest)

Zohore hóf atvinnumannaferilinn hjá Kaupmannahöfn þegar hann var aðeins 16 ára gamall.

Zohore hóf atvinnumannaferilinn hjá Kaupmannahöfn þegar hann var aðeins 16 ára gamall.

Canon

Mynd: politiken.dk / FCK

Kenneth Zohore er genginn til liðs við Aron Einar Gunnarsson og félaga í Cardiff City þar sem hann verður á láni út tímabilið.

Cardiff má ekki kaupa neina leikmenn vegna félagsskiptabanns frá FIFA en má þó fá leikmenn lánaða til sín.
Vincent Tan, eigandi Cardiff City, á knattspyrnufélagið Kortrijk í Belgíu. Hann keypti Zohore því til Kortrijk og lánaði strax til Cardiff, sem mun að öllum líkindum kaupa sóknarmanninn þegar leyfi fæst.

Zohore, sem er danskur, kemur frá danska félaginu Odense þar sem hann hefur verið að spila með Hallgrími Jónassyni og Ara Frey Skúlasyni.

Vincent Tan er ekki eini eigandinn í knattspyrnuheiminum sem hefur gert kúnstir svipaðar þessari, en ítalska Pozzo fjölskyldan hefur farið ýmsar krókaleiðir í gegnum árin. Pozzo fjölskyldan á Watford, Udinese og Granada.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.