01.02.16 - 18:59
Ívan Guðjón Baldursson
Valencia vann kapphlaupið um Cheryshev (Staðfest)

Cheryshev var á láni hjá Villarreal á síðasta tímabili.

Mynd: Getty Images

Valencia hafði betur í kapphlaupinu um Denis Cheryshev, 25 ára kantmann Real Madrid, og verður hann hjá félaginu út tímabilið.
Sevilla og Liverpool voru meðal liða sem vildu fá leikmanninn í sínar raðir en Rússinn valdi Valencia.

Cheryshev er líklegur til að fara beint inn í byrjunarlið Valencia sem mætir Barcelona í undanúrslitum spænska bikarsins á miðvikudaginn.
Til gamans má geta að Real Madrid var hent úr spænska bikarnum vegna þess að Cheryshev var notaður þegar hann átti í raun að vera að aflpána leikbann. Nú er Cheryshev kominn í undanúrslit bikarsins.