Fotbolti.net
01.02.22 - 13:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Agger fær Madsen á láni frá Vestra (Staðfest)

Agger fær Madsen á láni frá Vestra (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Lengjudeildin
Vestri hefur lánað Nicolaj Madsen til danska félagsins HB Köge út marsmánuð. Það kemur til vegna fjölda meiðsla í leikmannahópi danska félagsins. Madsen hittir svo leikmannahóp Vestra í æfingaferð í byrjun apríl.
„Það kemur tilkynning frá okkur í dag. Madsen er í Danmörku yfir vetrartímann og er búinn að æfa með HB Köge. Þar eru meiðslavandræði, eru með lítinn hóp og heyrðu í okkur varðandi að fá Nico lánaðan. Við samþykktum að lána hann fram á 31. mars."

„Hann mun því koma til móts við Vestra í æfingaferðinni hjá okkur í staðinn fyrir að koma um næstu mánaðarmót. Nico verður mættur til Spánar með okkur þann 1. apríl,"
sagði Samúel Samúelsson, meðstjórnandi Vestra, við Fótbolta.net í dag.

Nicolaj Madesn er 33 ára miðjumaður sem gekk í raðir Vestra fyrir síðasta tímabil. Hann skoraði átta mörk í 26 leikjum í deild og bikar. Í október framlengdi hann samning sinn við félagið en þá hafði heyrst að Fram hefði áhuga á honum.

Nicolaj hefur í tvígang spilað með HB Köge á ferlinum, árin 2009-2013 og svo aftur seinni hluta árs 2018. Félagið er í næstefstu deild og Daniel Agger, fyrrum leikmaður Liverpool, er þjálfari liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.