Fotbolti.net
01.02.22 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aníta í Stjörnuna - Sóley lánuð til Portúgals (Staðfest)

Aníta Ólafsdóttir

Aníta Ólafsdóttir

Canon

Mynd: Stjarnan

Kvennaboltinn
Aníta Ólafsdóttir, markvörður sem fædd er árið 2003, samdi á dögunum við Stjörnuna um að leika með liðinu á komandi leiktíð.

Aníta er af Snæfellsnesinu en hefur leikið með meistaraflokki ÍA síðustu þrjú keppnistímabil og spilaði þar 61 leik. Að baki á hún hún einnig ellefu leiki með yngri landsliðum Íslands.
„Anítu er ætlað það hlutverk að þétta vaska sveit markvarða hjá Stjörnunni og efla samkeppni um markvarðastöðurnar," segir í tilkynningu Stjörnunnar.

Þá greindi Stjarnan frá því í gær að Klara Mist Karlsdóttir hefði endurnýjað samning sinn við félagið. Klara, sem fædd er árið 2003, kom við sögu í fjórum leikjum Stjörnunnar í Pepsí Max deildinni á síðustu leiktíð og stefnir á að bæta fleiri leikjum í safnið á komandi árum. Hún getur bæði spilað sem miðju- og varnarmaður.

Þá er Sóley Guðmundsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, gengin í raðir portúgalska félagsins Sport Futebol Damaiense á láni.

Félagið er í Lissabon og spilar í næstefstu deild eftir að hafa fallið á síðasta tímabili. Það ætlar sér beint upp í efstu deild aftur og að fá Sóleyju til félagsins er hluti af þeirri leið.

Stefnan er að Sóley verði komin til baka í upphafi Íslandsmóts til að spila með Stjörnunni. Sóley verður númer 23 hjá félaginu.

Sóley framlengdi samning sinn við Stjörnuna eftir síðasta tímabil, hún er uppalin hjá ÍBV og spilar sem varnarmaður.

Sóley Guðmundsdóttir

Sóley Guðmundsdóttir

Canon

Mynd: Hafrún Guðmundsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.