Fotbolti.net
01.02.22 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aubameyang búinn að rifta samningi við Arsenal (Staðfest)

Pierre-Emerick Aubameyang.

Pierre-Emerick Aubameyang.

Canon

Mynd: EPA

Sóknarmaðurinn Pierre-Emerick Aubameyang og enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi.
Arsenal var að gefa út tilkynningu um þetta. „Við óskum Auba alls hins besta í næsta kafla og þökkum honum fyrir hans framlag til félagsins."

Aubameyang er að ganga í raðir Barcelona á frjálsri sölu. Hann vildi gera það og félagið var til í að losna við hann.

Það sem Arsenal græðir á þessu er að félagið losnar við launakostnað Aubameyang, sem er virkilega hár. Hjá Arsenal er Aubameyang með 350 þúsund pund í vikulaun á samningi sem gildir til 2023.

Aubameyang mun taka á sig verulega launalækkun til að ganga í raðir Barcelona, sem er í miklum fjárhagsvandræðum.

Arsenal deildi tíðindunum á Twitter og þar svaraði Aubameyang með hjarta, eins og sjá má hér fyrir neðan; allir vinir að lokum.

Sjá einnig:
Frír Aubameyang - Hver er pælingin?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.