Fotbolti.net
01.02.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Brighton kaupir framherja og lánar hann til baka (Staðfest)

Brighton kaupir framherja og lánar hann til baka (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Brighton hefur gengið frá kaupum á Deniz Undav frá Royale Union Saint-Gilloise. Kaupverðið er óuppgefið en hann skrifar undir fjögurra ára samning.
Hann verður á láni hjá Union út tímabilið en liðið er óvænt á toppi efstu deildarinnar í Belgíu.

Undav er 25 ára gamall þýskur framherji en hann hefur leikið 51 leik í belgísku deildinni og skorað 35 mörk.

Brighton fékk einnig Benicio Baker-Boaitey, 18 ára gamlan kantmann, á láni frá Benfica í gær. Brighton á möguleika á að kaupa hann svo. Hann fer í U23 lið Brighton.

Brighton er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 30 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.