01.02.22 - 00:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dele Alli í Everton (Staðfest)

Dele Alli.

Mynd: EPA

Dele Alli.

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Dele Alli er orðinn leikmaður Everton. Þetta var staðfest rétt í þessu.
Hann skrifar undir samning við Everton sem gildir til ársins 2024. Ferill hans hefur staðnað heldur betur hjá Tottenham síðustu ár og fær hann núna tækifæri til að endurlífga hann hjá Everton.
Everton mun borga Tottenham 12 milljónir evra þegar Alli er búinn að spila 20 leiki fyrir félagið. Kaupverðið gæti farið upp í allt að 40 milljónir evra, en það fer eftir frammistöðu Alli og liðsins á næstu árum.
Alli er 25 ára gamall, hefur komið við sögu í átján leikjum á tímabilinu og skorað tvö mörk. Hann hefur ekki verið góður á þessu tímabili og ekki náð að sýna sínar bestu hliðar síðustu ár eftir að hafa brotist hratt og vel fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum síðan.
Hann á að baki 37 landsleiki fyrir England, en sá síðasti kom árið 2019.
Frank Lampard tók við Everton í gær og fékk tvo leikmenn áður en glugginn lokaði. Donny van de Beek kom frá Manchester United og Alli frá Tottenham. Báðir eru þeir miðjumenn.

👋 @dele_official pic.twitter.com/3Zxj20O4BU
— Everton (@Everton) February 1, 2022