01.02.22 - 11:37
Elvar Geir Magnússon
Elias Tamburini frá ÍA í þýsku D-deildina (Staðfest)

Elias Tamburini (til hægri) í leik með ÍA í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Elias Tamburini hefur gengið til liðs við þýska D-deildarliðið Phönix Lübeck en hann var samningslaus hjá ÍA.
Þessi 27 ára finnski vinstri bakvörður hefur spilað hér á landi síðan 2018 en þá gekk hann í raðir Grindavíkur frá bandaríska háskólaboltanum.
Fyrir síðasta tímabil þá gekk hann í raðir Skagamanna og lék sautján leiki með liðinu í efstu deild í fyrra, þegar ÍA tókst með naumindum að bjarga sér frá falli.
Hann kom inn sem varamaður á 82. mínútu þegar ÍA tapaði 3-0 fyrir Víkingi í bikarúrslitaleiknum.
Phönix Lübeck er í níunda sæti af ellefu liðum í sínum riðli í þýsku D-deildinni.