01.02.22 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum Sunderland-maðurinn Josh Maja lánaður til Stoke (Staðfest)

Josh Maja.

Mynd: Getty Images

Josh Maja.

Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Josh Maja er mættur aftur í enska boltann. Hann gekk í raðir Stoke City á láni frá franska félaginu Bordeaux í gærkvöldi.
Hinn 23 ára gamli Maja var á láni hjá Fulham í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og skoraði þá þrjú mörk í 15 deildarleikjum.
Hann hefur aðeins spilað tvo leiki í frönsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Hann meiddist í baki snemma á tímabilinu og hefur ekki náð takti eftir það.
Maja kemur til með að styrkja Stoke mikið og hjálpar hann liðinu eflaust í toppbaráttunni í Championship-deildinni.
Sló í gegn í sjónvarpsþáttum
Maja sló í gegn með Sunderland í ensku C-deildinni tímabilið 2018/2019 en Bordeaux keypti hann í janúar 2019.
Maja vakti athygli í Netflix þáttaröðinni "Sunderland 'Til I Die". Maja raðaði inn mörkunum innan vallar en utan vallar sagðist hann alltaf ætla að skrifa undir nýjan samning sem hann á endanum gerði svo ekki. Hann fékk ekki ásættanlegt tilboð frá Sunderland og ákvað að fara.
Það verður gaman að sjá hvað hann mun gera í Championship út þessa leiktíð.