Fotbolti.net
01.02.22 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Hinn 38 ára gamli Pandev til Parma (Staðfest)

Goran Pandev.

Goran Pandev.

Canon

Mynd: EPA

Hinn 38 ára gamli Goran Pandev er ekki alveg hættur í fótbolta. Í gær samdi hann við hið sögufræga félag, Parma.
Pandev lék 20 leiki fyrri hluta þessa tímabils með Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni. Hann skoraði ekki eitt mark í þessum leikjum og mun spila seinni hluta tímabilsins í Serie B.

Pandev hefur aldrei spilað í Serie B og verður fróðlegt að sjá hvernig það gengur hjá honum.

Þessi öflugi sóknarmaður lék áður fyrr með Inter, Napoli og Lazio meðal annars. Hann var í sigurliði Inter í Meistaradeildinni árið 2010.

Parma hefur verið í vandræðum á þessu tímabili og er liðið í augnablikinu í tólfta sæti B-deildarinnar á Ítalíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.