Fotbolti.net
01.02.22 - 15:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Nicolas Gaitan til Pacos í Portúgal (Staðfest) - Bjór skaut niður flugvél

Gaitan í treyju Benfica.

Gaitan í treyju Benfica.

Canon

Mynd: Getty Images

Nicolas Gaitan, fyrrum leikmaður Boca Juniors, Benfica og Atletico Madrid, er genginn í raðir Pacos de Ferreira.

Gaitan var á sínum tíma orðaður nánast daglega við Manchester United en aldrei varð neitt úr því. Gaitan er 33 ára Argentínumaður sem spilar fyrir aftan framherja eða á vængnum.
Pacos endaði í 5. sæti portúgölsku deildarinnar í fyrra og er sem stendur í 11. sæti deildarinnar.

Gaitan hefur undanfarin þrjú ár leikið með Dalian Yifang, Chicago Fire, Lille, Braga og Penarol. Á sínum tíma lék hann nítján landsleiki með argentínska landsliðinu.

Gælunafn Pacos eru bjórarnir (castores) og í kynningarmyndbandinu má sjá bjór á heimavelli félagsins. Sá bjór skýtur niður úr flugvél og Gaitan svífur til jarðar í fallhlíf.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.