Fotbolti.net
01.02.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Reinildo Mandava til Atletico Madrid (Staðfest)

Reinildo Mandava.

Reinildo Mandava.

Canon

Mynd: EPA

Atletico Madrid krækti í vinstri bakvörðinn Reinildo Mandava áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær.
Diego Simeone, stjóri Atletico, vildi fá bakvörðinn inn. Eini vinstri bakvörðurinn í hópnum var Renan Lodi og vildi Simeone fá samkeppni um stöðuna.

Mandava er 28 ára gamall og á að baki 29 landsleiki fyrir Mósambík. Hann gekk í raðir Lille árið 2019 og varð franskur meistari með liðinu síðasta vor.

Samingur hans við Lille átti að renna út næsta sumar og því þurfti Atletico ekki að borga mikið fyrir hann.

Atletico er í fjórða sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.