Fotbolti.net
01.02.22 - 14:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Svava Rós til Brann (Staðfest) - Hittir fyrir tvo fyrrum liðsfélaga

Svava Rós

Svava Rós

Canon

Mynd: Brann

Kvennaboltinn
Svava Rós Guðmundsdóttir er gengin í raðir SK Brann í Noregi. Hún kemur frá Bordeaux í Frakklandi og skrifar undir samning út tímabilið 2022. Möguleiki er á árs framlengingu.

„Núna er ég mjög glöð og hlakka til að byrja," sagði Svava við undirskrift. Hún er 26 ára sóknarmaður sem getur leyst nokkrar stöður framlarlega á vellinum. Hún rifti samningi sínum við Bordeaux í desember og hefur verið í leit að nýju félagi síðan. Hún var einnig orðuð við Vålerenga og AC Milan.
„Brann er félag sem er með háleit markmið sem heillaði mig. Ég er hrifin af stefnunni sem félagið hefur tekið og núna langar mig að hjálpa liðinu að vinna titla á tímabilinu."

Brann tók yfir Sandviken eftir síðasta tímabil en Sandviken varð norskur meistari. Hjá Brann hittir Svava fyrir Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur sem samdi við félagið í byrjun árs.

„Ég þekki Berglind mjög vel úr landsliðinu og þá spiluðum við saman hjá Breiðabliki. Ég þekki líka Sessy Åsland vel frá tíma okkar í Röa og Kristianstad. Það verður gaman að spila með þeim tveimur aftur," sagði Svava sem lék með Röa í Noregi tímabilið 2018 og gekk svo í raðir sænska félagið Kristianstad.

Alexander Straus, þjálfari Brann, er ánægður með að fá Svövu. „Það er ekkert leyndarmál að við vildum fá einn sóknarmann í viðbót og Svava er leikmaður sem við höfum viljað í talsverðan tíman. Hún var með nokkur góð tilboð en sýndi mikinn áhuga á að spila fyrir okkur þegar við sýndum áhuga, það finnst mér mjög jákvætt. Í Svövu fá við leikmann sem er mjög hraður, sterk og með mikinn sprengikraft. Hún gerir okkur klárlega að öflugra liði á komandi tímabili," sagði Straus.

Fyrsti leikur Brann er gegn Röa á útivelli þann 20. mars.
Svava og þjálfarinn Alexander Straus.

Svava og þjálfarinn Alexander Straus.

Canon

Mynd: Brann

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.