01.02.22 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Telma Hjaltalín spilar með FH í sumar (Staðfest) - Ekki spilað síðan 2018

Telma var valin í landsliðshópinn í ágúst 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Telma Hjaltalín Þrastardóttir hefur skrifað undir samning við FH og mun því leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum í dag.
Telma er reynslumikill leikmaður og á að baki 88 leiki í efstu deild og í þeim hefur hún skorað 52 mörk. Á ferli sínum hefur hún m.a. spilað með Val, Breiðablik og Aftureldingu þar sem hún hóf sinn feril. Síðast spilaði hún með Stjörnunni árið 2018.
Hún á einnig að baki 49 leiki fyrir yngri landslið Íslands. „Það er því ljóst að Telma mun styrkja FH liðið í baráttunni í Lengjudeildinni á næsta tímabili," segir í tilkynningu FH.
Telma skipti yfir í FH síðasta sumar, hún sleit krossband árið 2016, aftur árið 2017 og í þriðja skiptið undir lok september 2018. Árið 2020 sagði hún frá því að hún vissi ekki hvort hún myndi spila fótbolta aftur.
Sjá einnig:
Reimar aftur á sig takkaskóna: Lítil skref á mínum hraða (27. júlí '21)