01.03.13 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Robert Earnshaw til Toronto FC (Staðfest)

Robert Earnshaw.

Mynd: Twitter

Robert Earnshaw.

Mynd: Twitter
Welski framherjinn Robert Earnshaw er genginn í raðir Toronto FC frá Cardiff.
Earnshaw átti erfitt uppdráttar undanfarin misseri hjá Cardiff, en hann átti í erifðleikum með að vinna sér sæti í liðinu.
Hann fór því á láni til Maccabi Tel Aviv undir lok síðasta árs en snéri þó aftur til Cardiff eftir áramót.
Nú er hann hinsvegar farinn frá Cardiff endanlega og skrifaði hann undir samning hjá Toronto í gær.
Earnshaw verður löglegur með Toronto um helgina þegar nýtt keppnistímabil í MLS-deildinni hefst.