01.03.13 - 10:06
Magnús Már Einarsson
Ryan Giggs framlengir við Man Utd (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ryan Giggs hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Manchester United en hann ætlar að taka að minnsta kosti eitt tímabil til viðbótar með liðinu.
Giggs verður fertugur í nóvember næstkomandi en hann mun um helgina líklega spila sinn 1000. leik á ferlinum þegar liðið mætir Norwich.

Giggs hefur orðið tólf sinnum enskur meistari með Manchester United en hann hefur unnið marga aðra titla með félaginu.
,,Hvað get ég sagt um Ryan sem hefur ekki ennþá verið sagt? Hann er magnaður leikmaður og frábær persóna,\" sagði Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United eftir að Giggs skrifaði undir.
Giggs segist sjálfur vera í fínu standi. ,,Mér líður vel, ég er að njóta þess að spila fótbolta sem aldrei fyrr og það sem er mikivægast, ég tel að ég sé að hjálpa liðinu,\" sagði Giggs.