Fotbolti.net
01.03.16 - 15:20
Magnús Már Einarsson

Arnór Gauti í Selfoss (Staðfest)

Arnór Gauti (til hægri) fagnar marki með Blikum í fyrra.

Arnór Gauti (til hægri) fagnar marki með Blikum í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur fengið framherjann Arnór Gauta Ragnarsson í sínar raðir á láni frá Breiðabliki.
Arnór Gauti er fæddur árið 1997 og er því ennþá á elsta ári í öðrum flokki.

Hann fékk smjörþefinn af því að spila með meistaraflokki hjá Breiðabliki í fyrra þegar hann skoraði eitt mark í leik gegn KFG í Borgunarbikarnum og kom við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni.

Arnór kom til Breiðabliks frá Aftureldingu árið 2013 en hann á einn leik að baki með U19 ára landsliði Íslands.

Selfyssingar hafa verið að styrkja leikmannahóp sinn fyrir sumarið en á dögunum sömdu Giordiano Pantano, James Mack III og “Pachu” Martínez Gutiérrez við félagið.

Komnir:
Arnór Gauti Ragnarsson á láni frá Breiðabliki
Giordiano Pantano frá AC Lumezzane á Ítalíu
James \"J.C.\" Mack III frá Ekenas í Finnlandi
Óttar Guðlaugsson frá Hetti
“Pachu” Martínez Gutiérrez frá Gjøvik-Lyn í Noregi
Stefán Ragnar Guðlaugsson frá Fylki

Farnir:
Brynjar Már Björnsson í Stjörnuna (Var á láni)
Denis Sytnik
Einar Ottó Antonsson í Ægi
Elton Renato Livramento Barros í Hauka
Halldór Arnarsson í ÍR
Ivanirson Silva Oliveira
Jordan Edridge
Luka Jagacic
Matthew Whatley
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.