Fotbolti.net
01.03.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Besic og Oviedo framlengja við Everton (Staðfest)

Besic og Oviedo framlengja við Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Muhamed Besic er búinn að framlengja samning sinn við Everton og er nú samningsbundinn félaginu til 2021.

Besic er búinn að brjótast inn í byrjunarlið Everton þar sem hann leikur sem varnarsinnaður miðjumaður.
Besic á 23 landsleiki að baki fyrir bosníska landsliðið þrátt fyrir ungan aldur og var ekki lengi að stimpla sig inn í liðið hjá Everton, en hefur verið frá undanfarnar vikur vegna meiðsla.

„Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning við félag af þessari stærðargráðu,\" sagði Besic við vefsíðu Everton.

„Það fyllir mig af stolti að félagið hafi ákveðið að bjóða mér þennan samning eftir eitt og hálft ár. Það var erfitt að fóta sig í fyrstu en núna líður mér eins og heima hjá mér, ég er virkilega hamingjusamur.\"

Hinn 26 ára gamli Bryan Oviedo, sem getur spilað í vinstri bakverði og á kantinum, skrifaði einnig undir nýjan samning við félagið á dögunum og þá er talið að Ross Barkley fái nýjan samning í sumar. Oviedo er samningsbundinn þeim bláklæddu til sumarsins 2019.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.