01.03.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gerson til Roma á 16 milljónir (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Brasilíski táningurinn Gerson Santos da Silva skrifaði undir samning við AS Roma í janúar en var lánaður strax aftur heim til uppeldisfélags sins, Fluminese.
Gerson er aðeins átján ára gamall og lék 29 deildarleiki með Fluminese á síðasta tímabili í brasilíska boltanum.
Gerson er aðeins átján ára gamall og lék 29 deildarleiki með Fluminese á síðasta tímabili í brasilíska boltanum.
Gerson spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður og á sjö landsleiki að baki fyrir U20 lið Brasilíu, en Roma staðfesti á dögunum kaupverðið á Brassanum sem var einnig eftirsóttur af liðum á borð við Barcelona, Atletico Madrid og Juventus.
Roma greiddi rúmlega 16 milljónir evra fyrir Gerson, eða rétt tæplega 13 milljónir punda, og bindur félagið augljóslega miklar vonir við að þessi kaup borgi sig í framtíðinni.
Roma greiddi rúmlega 16 milljónir evra fyrir Gerson, eða rétt tæplega 13 milljónir punda, og bindur félagið augljóslega miklar vonir við að þessi kaup borgi sig í framtíðinni.
