01.03.16 - 15:12
Magnús Már Einarsson
Hávaxinn markvörður frá Ítalíu á Fáskrúðsfjörð (Staðfest)

Stefano á æfingu með Prato fyrir nokkrum árum.

Mynd: Heimasíða Prato

Stefano á æfingu með Prato fyrir nokkrum árum.

Mynd: Heimasíða Prato
Leiknir Fáskrúðsfirði hefur samið við markvörðinn Stefano Layeni en hann mun leika með liðinu í 1. deild í sumar.
Hinn 33 ára gamli Stefano er fæddur í Nígeríu en hann er einnig með ítalskt vegabréf.
Hinn 33 ára gamli Stefano er fæddur í Nígeríu en hann er einnig með ítalskt vegabréf.
Stefano er 198 cm á hæð en hann hefur lengst af á ferlinum spilað á Ítalíu.
Á sínum tíma lék Stefano með AlbinoLeffe í Serie B en hann hefur einnig leikið í öðrum neðri deildum á Ítalíu. Þá á hann að baki leiki með Como í Serie A.
Bergsteinn Magnússon varði mark Leiknis þegar liðið komst upp úr 2. deildinni í fyrra en Stefano mun standa á milli stanganna í sumar. Hann spilar líklega sinn fyrsta leik með Leikni gegn FH í Lengjubikarnum á laugardag.
Komnir:
Ísak Breki Jónsson frá Fylki
Sergio Cuesta Amella frá Quintanar del Rey á Spáni
Stefano Layeni frá Ítalíu
Farnir:
Fernando Garcia Castellanos til Spánar
Haraldur Þór Guðmundsson í Fjarðabyggð
Paul Bodgan Nicolescu
Vignir Daníel Lúðvíksson í Þrótt Vogum