01.03.16 - 17:21
Magnús Már Einarsson
Pape Mamadou Faye í Víking Ó. (Staðfest)

Mynd af Pape Mamadou Faye og Jónas Gesti Jónassyni formanni knd. Víkings Ó við undirskrift á tveggja ára samning á starfsstöð Jako í Kópavogi.

Mynd: Víkingur Ó.

Framherjinn Pape Mamadou Faye hefur gert tveggja ára samning við Víking Ólafsvík.
Hinn 24 ára gamli Pape hætti hjá Víkingi R. í fyrravor en hann lék síðan með BÍ/Bolungarvík síðari hluta sumars.
Pape hefur dvalið í Senegal í vetur en hann er nú mættur aftur til Íslands og mun leika með Víkingi í sumar.

„Ég er gríðarlega ánægður með að vera kominn í Pepsi-deildina og er farinn að hlakka til mótsins,\" sagði Pape við Fótbolta.net í dag.
Pape er uppalinn Fylkismaður en hann hefur skorað 42 mörk í 141 deildar og bikarleik á ferli sínum.