Fotbolti.net
01.03.19 - 22:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óskar Hrafn: Eins og það væru þrjú aðfangadagskvöld í fyrri hálfleik

Auglýsing
Óskar Hrafn: Eins og það væru þrjú aðfangadagskvöld í fyrri hálfleik
Canon

Mynd: Raggi Óla

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Gróttu, var í viðtali eftir leik Gróttu og Víkings R. í kvöld. Víkingar höfðu betur eftir fjörugan leik. Leikurinn endaði með 3-2 sigri Reykjavíkur Víkinga.
Óskar var spurður út í leikinn, leikstílinn, mögulega styrkingu á leikmannahópnum og markmið fyrir sumarið.

„Við getum tekið allan seinni hálfleikinn út úr þessum leik, við gáfum þeim full mikla forgjöf í byrjun leik en mér fannst við stjórna leiknum algjörlega í seinni hálfleik," sagði Óskar.

„Þetta var mjög skemmtilegur leikur, bæði lið reyndu að spila boltanum og bæði lið pressuðu. Við vorum kannski full gjafmildir í fyrri hálfleik, svona eins og það væru þrjú aðfangadagskvöld fyrir Víkingana."

„Maður vill ekki að í hvert skipti sem við töpum boltanum að andstæðingurinn fái dauðafæri eins og var að gerast í fyrri hálfleik."

„Auðvitað skoðum við allt. Við vinnum eftir ákveðni stefnu og það er svolítið þröngt mengi af leikmönnum sem passa inn í þá stefnu, við tökum ekki leikmenn sem passa ekki inn í okkar stefnu."

„Við ætlum að þora að spila fótbolta, berjast sem lið, reyna að stjórna leikjum. Við höfum ekki sett okkur markmið um sæti. Við ætlum ekki að vera í fallbaráttu."


Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.