Fotbolti.net
01.03.22 - 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fjölnir fær unglingalandsliðsmann á láni frá Breiðabliki (Staðfest)

Fjölnir fær unglingalandsliðsmann á láni frá Breiðabliki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Lengjudeildin
Fjölnir hefur fengið unglingalandsliðsmanninn Arnar Núma Gíslason á láni frá Breiðabliki. Hann er kominn með leikheimild með Fjölni.

Arnar Númi er sautján ára gamall og kom við sögu í einum leik með Breiðabliki í fyrra. Hann skoraði þá sjö mörk í tólf leikum fyrir annan flokk Blika síðasta sumar.
Hann á að baki fjóra leiki fyrir U17 landsliðið og fjóra leiki fyrir U19.

Arnar Númi æfði með Hellas Verona á Ítalíu í janúar.

Hann kom til Breiðabliks frá Haukum eftir tímabilið 2020. Það tímabil lék hann fjóra leiki í 2. deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.