01.04.13 - 20:22
Daníel Freyr Jónsson
Leeds búið að reka Warnock (Staðfest)

Neil Warnock.

Mynd: Getty Images

Neil Warnock.

Mynd: Getty Images
Leeds United hefur staðfest að Neil Warnock sé hættur sem stjóri félagsins. Það kemur eftir slæmt gengi að undanförnu.
Warnock tók við liðinu í febrúar á síðasta ári og átti samningur hans að renna út í sumar.
Eftir tapleik gegn Derby í dag er Leeds í 12. sætinu og er komið langt frá sæti í útsláttakeppninni um sæti í úrvalsdeildinni. Að auki er liðið einungis fimm stigum frá fallsæti.
Neil Readfarn mun taka við liðinu tímabundið, en hann stýrir unglingaliði Leeds.
,,Ákvörðunin er tekin með næsta tímabil í huga og verður Neil Redfearn beðinn um að stýra liðinu þar til nýr stjóri hefur verið fundinn,\" segir í yfirlýsingu frá Leeds.
,,Stuttur listi hefur þegar verið tekinn saman þar sem Warnock var alltaf að fara að yfirgefa félagið í lok tímabilsins þar sem við náðum ekki að komast upp um deild..\"
Warnock, sem er 64 ár gamall, hefur áður stýrt meðal annars QPR, Crystal Palace og Sheffield United.