Fotbolti.net
01.04.16 - 17:08
Magnús Már Einarsson

Gunnlaugur Hlynur í Fram (Staðfest)

Gunnlaugur Hlynur Birgisson.

Gunnlaugur Hlynur Birgisson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram hefur fengið miðjumanninn Gunnlaug Hlyn Birgisson á láni frá Breiðabliki.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net gæti Fram einnig fengið Ósvald Jarl Traustason á láni frá Blikum á næstunni.

Gunnlaugur Hlynur var í láni hjá Víkingi Ólafsvík síðari hlutann á síðasta tímabili en hann hjálpaði liðinu upp í Pepsi-deildina.
Hinn tvítugi Gunnlaugur Hlynur spilaði einnig fjóra deildar og bikarleiki með Blikum í fyrra.

Frá 2012 til 2014 var Gunnlaugur á mála hjá Club Brugge í Belgíu.

Komnir:
Atli Fannar Jónsson frá Víkingi R.
Brynjar Kristmundsson frá Víkingi Ó.
Gunnlaugur Hlynur Birgisson á láni frá Breiðabliki
Hafþór Þrastarson frá Fjarðabyggð
Hilmar Þór Hilmarsson frá Val
Hlynur Atli Magnússon frá Noregi
Ingólfur Sigurðsson frá Víkingi Ó.
Mate Paponja frá Króatíu
Sigurður Hrannar Björnsson frá Víkingi R. á láni
Sigurpáll Melberg Pálsson frá Víkingi R.
Stefano Layeni frá Leikni F.

Farnir:
Alexander Aron Davorsson í Aftureldingu
Cody Nobles Mizell
Davíð Einarsson í Fylki (Var á láni)
Einar Már Þórisson í KV
Ernir Bjarnason í Breiðablik (Var á láni)
Gunnar Helgi Steindórsson
Magnús Már Lúðvíksson hættur
Ómar Friðriksson í Víking R. (Var á láni)
Sebastien Uchechukwu Ibeagha
Sigurður Gísli Snorrason í FH (Var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.